Þá líður september. Það er búið að vera meir en nóg að gera. Koma húsinu á sölu og halda afmælisveislur. Hallgrímur hélt upp á 6 ára afmæli sitt í Par-tee-zone. Það var vel heppnað og hann fékk mikið af flottum gjöfum.
Héðan er allt gott, Kári og Hallgrímur halda áfram að æfa fótbolta, Hallgrímur spilar á píanóið og æfir sig fyrir tónleika. Ragnheiður er alltaf sama skottan, fer um allt með bros á vör. Fyrsta tönnin hefur litið dagsins ljós!
No comments:
Post a Comment