Friday, November 05, 2010
Sunday, October 31, 2010
Pictures for those who live abroad..
Thursday, November 05, 2009
Styttist í heimferð
Sunday, October 18, 2009
Október
Á þriðjudaginn ætlum við svo að fara í graskersleiðangur í sveitina, það klikkar aldrei.
Benedikt og Halldór kepptu á síðasta X Country mótinu um helgina. Við fórum til höfuðborgarinnar Des Moines, það var fylkismót.
Fyrir viku síðan fórum ég og börnin ásamt Fionu, Andy og börnum í hellaferð í Maquoketa. Ég setti inn myndir frá ferðinni. Bestu kveðjur og senn styttist í heimferð..
Tuesday, September 29, 2009
Afmæli hjá Hara og Hallgrími
Héðan er allt gott, Kári og Hallgrímur halda áfram að æfa fótbolta, Hallgrímur spilar á píanóið og æfir sig fyrir tónleika. Ragnheiður er alltaf sama skottan, fer um allt með bros á vör. Fyrsta tönnin hefur litið dagsins ljós!
Bestu kveðjur héðan
Sunday, September 13, 2009
Sunnudagur
Fjölskyldan eyddi síðustu helgi ásamt Kötu og Hjalta í Suður-Dakóta hjá Önnu Margréti, Örvari og börnum. Það var góð helgi og á myndinni má sjá öll börnin nema þann elsta og þá yngstu:-)
Á eftir er Hallgrímur að fara í sinn fyrsta sundtíma. Hann og Kári eru líka byrjaðir í fótbolta. Halldór og Benedikt hlaupa á hverjum degi í X-Country, þeir eru búnir að keppa á einu móti og gekk ágætlega. Hér er yndislegt haustveður alla daga hitinn um 29 gráður.
Bestu kveðjur frá öllum
Monday, August 24, 2009
Hallgrímur skólastrákur.
Benedikt og Halldór eru líka byrjaðir í skólanum. Þeir fara í X Country og eru þegar byrjaðir að æfa.
Þessi vetur verður þó frábrugðinn öðrum þar sem þetta er síðasti veturinn okkar hér. Það er skrítið að hugsa til þess að þrjú ár séu liðinn síðan við komum.
Set inn myndir og bestu kveðjur
Subscribe to:
Posts (Atom)