Sunday, October 18, 2009

Október

Héðan er allt fínt, haustið komið og hrekkjavaka nálgast. Kára finnst svo gaman þessa dagana, hann vill helst skreyta allt húsið með leðurblökum og draugum. Hann og Hallgrímur eru búnir að velja sér búninga, Hallgrímur ætlar að vera sjóræningi en Kári Clone Trooper(úr star wars). Við erum búin að kaupa grasker, þau seljast svo hratt, gæti orðið skortur!
Á þriðjudaginn ætlum við svo að fara í graskersleiðangur í sveitina, það klikkar aldrei.
Benedikt og Halldór kepptu á síðasta X Country mótinu um helgina. Við fórum til höfuðborgarinnar Des Moines, það var fylkismót.
Fyrir viku síðan fórum ég og börnin ásamt Fionu, Andy og börnum í hellaferð í Maquoketa. Ég setti inn myndir frá ferðinni. Bestu kveðjur og senn styttist í heimferð..

No comments: