Wednesday, July 25, 2007


Það er óhætt að segja að hér sé fjör alla daga eftir að stóru strákarnir lentu. Kári og Hallgrímur eru svo ánægðir með að hafa endurheimt bræður sína að þeim finnst ómögulegt að gera nokkuð án þeirra og hvað þá að fara að sofa á kvöldin. Bensi og Halldór eru svo flottir og það er alveg ótrúlega gaman hjá okkur.
Núna erum við á fullu að skipuleggja fríið okkar, sem við ætlum að leggja af stað í á sunnudaginn kemur. Black Hills og Winnipeg eru áfangastaðirnir. Voðalega spennandi!
Í gær fórum við Hallgrímur í vettvangsferð með leikskólanum hans. Það var mjög gaman, við fórum að skoða húsdýr. Þessi húsdýr voru frábrugðin venjulegum þar sem þau voru öll að keppa um hvert þeirra væri best, þ.e. besta kjötið, besta mjólkin, bestu eggin eða besta öndin:) Þarna var beljuþvottastöð, þar sem beljunum var raðað upp og þær þvegnar,(minnti á bílaþvottaplan á Íslandi) síðan voru þær ryksugaðar svona til að setja punktin yfir iið. Kindurnar voru í hálfgerðum sundbolum, ekki veit ég afhverju, en þetta var ansi sérstakt og skemmtilegt.

2 comments:

Anonymous said...

Flott mynd af bræðrunun,íslensku sjómennirnir á myndinni eru miklu útiteknari en þeir sem voru heima á kornakrinum! Hringi á eftir, góða ferð öll sömul.
Ragnheiður

Anonymous said...

Hæ öll! Mikið er alltaf gaman hjá ykkur!Vildi ég hefði getað verið með í þessari vettvangsferð, hljómar skemmtilega;) kossar og knús til allra frá okkur.
kveðja
Móa