Monday, July 30, 2007

Dagur I og II

Þá erum við komin til Rapid City, South Dakota. Við lögðum af stað í gærmorgun og keyrðum þá til Sioux Falls og gistum þar, ferðalagið þangað tók aðeins 8 klukkutíma með ágætum stoppum! Í Sioux Falls heimsóttum við Önnu Margréti, Örvar og krakkana þeirra. Það var mjög gaman að sjá nýja húsið sem er hið glæsilegasta og ég tala ekki um að hitta þau öll:)
Í morgun lögðum við svo af stað hingað til Rapid City, sem tók okkur 6 tíma í keyrslu með stoppum, en þetta var mjög skemmtileg keyrsla og óvenjulegt landslag allt frá sléttum í fjöll. Það er líka óhætt að segja að vestrið lifir enn, vísundar, kúrekar og indíánar hér allt í kring.
Á morgun verður svo farið í ferð hér um svæðið, en við ætlum að gista hér í þrjár nætur enda meir en nóg að skoða. http://www.travelsd.com/

No comments: