Wednesday, July 15, 2009

Sumar og sól

Héðan er allt gott að frétta. Ragnheiður orðin 6 mánaða og byrjuð að fá graut í kvöldmatinn. Hún er einnig farin að skríða um allt og finnst flest sem ekki má skemmtilegt. Hallgrími og Kára finnst hún ótrúlega fyndin og sérstaklega þegar hún frussar grautnum útúr sér og yfir mömmu sína. Hallgrímur er núna á námskeiði með krökkum sem eru að byrja í skóla í haust. Hann er ánægður með það ásamt að sinna píanóinu. Kári minn skottast með mömmu sinni og litlu systur sem yfirleitt er ekkert svo leiðinlegt. Annars erum við öll farin að hlakka til komandi mánudags, en þá koma Halldór og Benedikt heim til okkar. Það verður alveg ótrúlega gaman.
Núna er amma Ragnheiður í heimsókn hjá okkur, en hún fer daginn eftir að tvíburarnir koma heim.
Við skemmtum okkur vel á fjórða júlí. Fórum í grill til Andy og Fi, kíktum svo á flugelda.
Myndin af Hallgrími og Kára er tekin í göngu á Woodpecker trail hérna í nágrenninu. Það var orðið svolítið heitt í skóginum, set inn nokkrar myndir.

No comments: