Wednesday, May 06, 2009

Vorið er komið ....

Héðan er allt gott. Ragnheiður tengdamamma er hjá okkur og ætlar að vera út mánuðinn. Það er ansi gaman og notalegt. Hún er að vinna í sínu námi, eins og drengirnir mínir stóru og kallinn. Öllum gengur vel. Hari á næstu viku eftir af skólanum og þá er þessi önn búin.
Litlu herrarnir mínir eru sprækir eins og vanalega. Kári fékk gat á höfuðið á sunnudaginn og þurfti að sauma fjögur spor. Hann stóð sig einstaklega vel og finnur ekkert fyrir þessu. Þeir bræður voru að byrja í fótbolta fyrir yngir kynslóðina, Tiny Tot Soccer, voða gaman, þeir eru þó ekki í sama liði, sem er ágætt.
Ragnheiður yngri er 4ra mánaða í dag. Við erum að fara í skoðun á eftir, hún er einstaklega ljúf og góð stúlka, sefur alla nóttina og vaknar með bros á vör. Bestu kveðjur

No comments: