Monday, May 05, 2008

Komin heim

Ferðin til St. Louis gekk vel. Hallgrímur og Kári voru góðir ferðafélagar og náðu ágætis sambandi við heimilisfólk og aðra ættingja. Við skoðuðum borgina og sáum Bogann stóra, listasafnið, Busch leikvanginn, þar sem hafnarbolti er spilaður, fór reyndar á leik með Cardinals á mánudagskveldinu. Völlurinn tekur 46000 og er mjög góð stemmning. Við kíktum að sjálfsögðu aðeins í búðir líka.
Núna erum við að njóta þess að hitastigið hefur loksins hækkað almennilega og við því komin í stuttbuxurnar. Í gærkveldi grilluðum við og borðuðum úti. það var ansi notalegt. Nú fer að styttast í heimferð mömmu. Aðeins tvær vikur eftir. Um næstu helgi ætlum við til Des Moines, það er fótbolti hjá þeim stóru. Bestu kveðjur og innilegustu hamingjuóskir til Haraldar með árin níutíu.

No comments: