Við eigum brúðkaupsafmæli í dag. Eitt ár liðið frá þessum frábæra degi og af því tilefni hef ég sett inn nokkrar myndir frá athöfninni og veislunni svona fyrir þá sem ekki hafa séð.
Fjölskyldan fór í ferðalag um helgina. Við fórum til Des Moines (höfuðborg Iowa), þar sem Benedikt og Halldór tóku þátt í fótboltamóti. Þetta var ansi skemmtilegt, þó að liðinu þeirra hafi ekki gengið sem skildi:(
Annars eiga Hallgrímur tengdapabbi og Anna Kristín mágkona afmæli í dag. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn.
Nú svo voru kosningaúrslitin ekkert svo slæm, vinstri grænir og sjálfstæðisflokkurinn unnu, einmitt eins og maður hafði vonað:) Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr því.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Til hamingju með brúðkaupsafmælið í gær Anna og Hari.
Heyrumst fljótlega
ykkar frændur og frænkur í West Hartford
Elsku Anna og Hari
Innilega til hamingju með ykkar fyrsta brúðkaupsafmæli hafið það gott kæru vinir.
Mikið rosalega var gaman fyrir ári síðan í veislunni, svakalega hvað tíminn líður hratt:-)
Edda og Kjartan
Hæ elskurnar mínar gaman að fylgjast með ykkur öllum og til hamingju með brúðkaupsafmælið. Ég var einmitt að hengja mynd af ykkur upp á vegg hjá mér um helgina mér til ánægju og yndisauka.
Knús
Didda
Post a Comment