Við héldu daginn að sjálfsögðu hátíðlegan og buðum þjóðræknum íslendingum í grill. Það var mjög gaman eins og vanalega, krakkarnir skelltu sér aðeins í laugina og svo voru grillaðar pulsur og hamborgarar.
Þau Hallgrímur, Ragnheiður og Ásgeir fóru fyrir viku, það var mjög góð heimsókn og margt skemmtilegt gert. Á morgun leggja svo Halldór og Benedikt af stað til Íslands. Þeir verða til 20 júlí. Við ætlum að keyra þá til Minneapolis og vera þar eina nótt. Alltaf gaman að kíkja þangað.
Hari er byrjaður í skólanum og við hin förum að skokka, í laugina eða bara einhvern garðinn að leika okkur. Bestu kveðjur frá Bambagötu og ætli ég setji ekki inn nokkrar myndir.
No comments:
Post a Comment