Febrúar mánuður var ansi góður. Ragnheiður kom í heimsókn frá London, það var alveg frábært að fá hana og Kári hélt upp á fjagra ára afmæli sitt sem tókst vel.
Á laugardaginn héldum við Þorrablót hér á Bambagötu, hangikjöt, harðfiskur og hákarl ásamt þrumara og síld, skyrkaka og kleinur í eftirmat. Algjört lostæti og svo gaman hjá öllum.
Um næstu helgi fer fjölskyldan í vorfrí. Stefnan verður tekin á Galena, http://www.galena.com/ sem er bær í Illinois. Þar erum við búinn að leigja hús í fjóra daga ásamt vinafólki okkar. Við erum spennt að fara, góð tilbreyting frá hinu daglega amstri!
Bestu kveðjur, set inn nokkrar myndir og takk fyrir gjafirnar handa Ragnheiði, hún er algjör prinsessa sem á 12 kjóla!
2 comments:
hæ!
voða gaman að sjá þessar myndir og heyra af ykkur!
sakna ykkar allra voða mikið og hlakka til að sjá litlu prinsessuna!
kveðja og knús
Móa frænka
Þetta eru fínar myndir af fjölskyldunni.Bíðum bara spenntar eftir að Ragnheiður noti kjólana mína.Mamma og amma biðja að heilsa. Og ég losna við gifsið eftir eina viku. hlakka til að sjá ykkur í eigin persónu. Og mamma spir hvort þið komið heim fyrir Skírdag því þá fermist Þorgeir.
Kveðja Magga framtíðar pössunarpía
(mamma stakk uppá þessu).
Post a Comment