Saturday, March 21, 2009

Laugardagskvöld

Þá eru drengirnir sofnaðir og stúlkan, við vorum að koma frá Kötu og Hjalta, fengum grillaða hamborgara. mmmmm ekkert betra! Hér er vorið komið, allvega hitalega séð. Gróðurinn er nú ekkert sérstaklega farinn að taka við sér en það kemur.
Ferðalagið gekk vel, þó það hafi verið pínu spæló að komast ekki á bretti eða skíði fyrir eldra settið. Það gerist seinna. Við fórum í heitapottinn, göngu um skóginn og á flott safn við Mississippi ánna, sem sýndi okkur lífið í ánni. Einnig skelltum við okkur í göngu á degi heilags Patreks, svona til heiðurs Íranna í USA. Á kvöldinn sátum við við varðeld og á myndinni má sjá Hallgrím borða smores sem er marshmallow hitað í eldi svo sett á hafrakex ásamt bita af súkkulaði. Við hlustuðum á sléttuúlfa ýlfra, froska vakna eftir vetrardvala og uglur í makaleit.
Núna er verið að vinna sig niður í rútínu aftur eftir gott vorfrí. Bestu kveðjur.

3 comments:

Anonymous said...

Hlýtur að vera mjög gaman hjá ykkur.
En nýjar fréttir ég losnaði við gifsið í dag og er mjög fegin enda búin að bíða í þrjár vikur en þarf að vera í teygusokk í tvær vikur í viðbót.
Hlakka mikið til að sjá fjölskylduna.
kveðja Magga.

Anonymous said...

langaði bara að senda knús á ykkur... söknum ykkar mikið :/
Væri nú ekki leiðinlegt að kikja í vorfílingin til ykkar :D
risa knkús og kossar,
Alexander Örn frændi og foreldrar

Edda said...

Voðalega hefur þetta verið skemmtileg og exótísk miðað við íslenska sveitaferð með jarmandi rollum. Fleiri myndir takk :-)
Allt gott að frétta héðan er farin að hlakka til páskafrísins.
Kossar á ykkur öll.
Edda