Ferðalagið gekk vel, þó það hafi verið pínu spæló að komast ekki á bretti eða skíði fyrir eldra settið. Það gerist seinna. Við fórum í heitapottinn, göngu um skóginn og á flott safn við Mississippi ánna, sem sýndi okkur lífið í ánni. Einnig skelltum við okkur í göngu á degi heilags Patreks, svona til heiðurs Íranna í USA. Á kvöldinn sátum við við varðeld og á myndinni má sjá Hallgrím borða smores sem er marshmallow hitað í eldi svo sett á hafrakex ásamt bita af súkkulaði. Við hlustuðum á sléttuúlfa ýlfra, froska vakna eftir vetrardvala og uglur í makaleit.
Núna er verið að vinna sig niður í rútínu aftur eftir gott vorfrí. Bestu kveðjur.
3 comments:
Hlýtur að vera mjög gaman hjá ykkur.
En nýjar fréttir ég losnaði við gifsið í dag og er mjög fegin enda búin að bíða í þrjár vikur en þarf að vera í teygusokk í tvær vikur í viðbót.
Hlakka mikið til að sjá fjölskylduna.
kveðja Magga.
langaði bara að senda knús á ykkur... söknum ykkar mikið :/
Væri nú ekki leiðinlegt að kikja í vorfílingin til ykkar :D
risa knkús og kossar,
Alexander Örn frændi og foreldrar
Voðalega hefur þetta verið skemmtileg og exótísk miðað við íslenska sveitaferð með jarmandi rollum. Fleiri myndir takk :-)
Allt gott að frétta héðan er farin að hlakka til páskafrísins.
Kossar á ykkur öll.
Edda
Post a Comment