Tuesday, February 17, 2009

Tannálfurinn kom!

Hér er hann Hallgrímur minn búinn að missa fyrstu tönnina sína, hann missti svo aðra í morgun. Þetta gerist svo hratt að vonandi verður hann ekki orðin tannlaus í enda vikunnar!
Annars er allt gott af okkur, börnin dafna vel, daman er alltaf dugleg að borða og sofa. Hún lætur aðeins hafa fyrir sér en það eiga líka dömur að gera.
Á föstudaginn snjóað ansi mikið, með þeim afleiðingum að það varð ofboðslega hált og mikil fjöldi bíla lentu í árekstri og vandræðum hér í brekkunni fyrir framan húsið. Enginn slasaðist þó sem betur fer.
Á morgun kemur Ragnheiður í heimsókn, við erum öll mjög spennt að fá hana til okkar.
Bestu kveðjur til allra og ég setti inn nokkrar nýjar myndir.

1 comment:

Anonymous said...

Ég handleggsbrotnaði í gær og ég þarf að hafa gifs í heilan mánuð
eg missi líka af stærsta körfu-
boltamótinu.Til hamingju með afmælið Kári.Og til hamingju Hallgrímur með að vara búin að missa tvær tennur.
Kveðja Magga.