Monday, January 12, 2009

Komnar heim

þá er hún fædd litla daman okkar. Alveg ótrúlega ljúf og góð. Drengirnir eru ansi ánægðir með hana og hún með þá. Hún sperrist öll upp þegar hún heyrir í þeim, en grætur og heimtar mat þegar hún heyrir í mömmu sinni.
Hér er hún á myndinni, strax á fyrsta degi, umvafin karlmönnum. Það er ekki leiðinlegt að hafa þetta glæsilega föruneyti til að hugsa um sig.
Ég set inn myndir frá 6 jan og síðastliðinni viku. Hafi þið það öll sem allra best og takk fyrir hlýjar kveðjur til okkar hér.

1 comment:

Anonymous said...

Innilegustu hamingjuóskir elsku fjölskylda. Frábært að sjá myndirnar af ykkur öllum og ekki síst Ragnheiði. Falleg stúlka sem þið hafið eignast og fengið hefur fallegt nafn.
Bestu kveðjur frá okkur á Ásvallagötunni.
Kveðja Ingibjörg Anna