Wednesday, December 17, 2008

snjóar og snjóar

Hér er ansi fallegt um að litast. Allt í snjó og frostið um -15 gráður. En það er ekki ROK sem er stærsti kosturinn;-)
Á myndinni má sjá hvað gerist þegar byrjar að snjóa og frostið er svona mikið. Það frýs allt jafn óðum og hálkan er ótrúleg. Þessi árekstur varð í gær á I-80 sem er aðalþjóðvegurinn hér í gegn.
7 trukkar lentu í vandræðum og tveir fólksbílar.
Núna bíðum við Hallgrímur og Kári eftir skólabílnum sem skilar H og B heim. Hari fer í þriðja prófið á eftir og svo það síðasta á föstudag. Þá er þessari önn lokið og tvær eftir.
Um helgina fékk ég leiðbeiningu í Quilt gerð og saumaði teppi handa væntanlegum fjölskyldumeðlimi. Nú er bara að fjárfesta í saumavél og gera fyrir restina af fjölskyldunni!
Baráttukveðjur

2 comments:

Unknown said...
This comment has been removed by the author.
Unknown said...

Ótrúlega fljótt að líða!
Við heyrum í ykkur þegar Hari er búinn í prófum!

Með snemmbúnum jólakveðjum frá jólaálfinum Alexander: www.alexanderorn.tumblr.com