Monday, December 08, 2008


Hér erum við hjónin að spila á þakkargjörð. Það tókst ansi vel og var mjög gaman hjá okkur. Núna eru allir á fullu að klára skólana sína áður en jólafríið byrjar. Við eigum tvær vikur eftir og svo bara Kósýheit par exelans eins og Baggalútur syngur svo hugljúft. Það væri nú ekki leiðinlegt að vera á leiðinni til Íslands yfir jólin, en við sjáumst síðar kæru vinir og vandamenn.
Húsfrúin á fjörutíu ára afmæli í dag, er að verða fimm barna móðir og snillingur í stærðfræði, loksins. Ekki verra að gorta sig aðeins af því. Bestu kveðjur til allra frá okkur á Bamba...

2 comments:

Anonymous said...

Elsku Anna mín!
Var að hringja í þig en enginn svaraði, ert vonandi úti að njóta lífsins með strákunum þínum á afmælinu. Til hamingju með daginn elsku vinkona og hafðu það sem allra best, ég hringi aftur bráðlega. Finnst þér ekki annars gaman að eiga stórafmæli!!!
Kveðja til allra, Kristín

Anonymous said...

Elsku Anna,
Sendum þér okkar allra bestu afmæliskveðjur af Ásvallagötunni. Þú berð aldurinn bara býsna vel....hljóta að vera öll þessi börn
kveðja, Stefanía