Friday, December 26, 2008

Gleðileg jól

Þá er annar í jólum senn liðinn. Hér eru allir ansi sáttir, aðfangadagur gekk vel, kalkúnninn var svo góður, fullt af pökkum og góð stemmning. Jóladagur var einnig alveg eins og maður vildi, notalegt og rólegt fram eftir degi, elduðum svo nautalund í rauðvínssósu um kvöldið voða gott.
Annars var svo kalt í gær að engan langaði út. -20 gráður, núna er aftur á móti 8 stiga hiti og svo mikil þoka að maður sér ekki næsta hús.
Á morgun fer fjölskyldan í afmæli hjá henni Steinunni Eddu, sem varð tveggja þann 13 des. Fyrir viku fórum við á jólaball hjá Önnu Margréti og Geir. Giljagaur mætti og var bara ansi gaman.
Við hér á Bambagötu þökkum kærlega fyrir okkur. Það var ansi ánægjulegt að fá alla pakkana frá Íslandi og kveðjurnar.

No comments: