Wednesday, November 05, 2008

Miðvikudagur í miðvestrinu

Obama tókst það, bensínverðið er komið undir 2 dollara og kannski bara allt á uppleið í usa!
En hjá okkur á Bambagötu er allt fínt. Haustið lætur vita af sér með endalausum laufum fjúkandi um allt, þvottabirnir í vegakantinum og nóg af dádýrum á röltinu á kvöldin. Ég keyrði yfir skúnk um daginn, ekki á hann sem betur fer hann var þegar dauður, og lyktin var ólýsanleg, ojjjjj það mátti engu muna að ég kastaði upp.

Núna eru rólegir dagar fram að miðsvetrarprófum og þakkargjörð. Það gekk vel á Hrekkjavökunni og allt fljótandi í sælgæti, Hallgrímur fékk sápur í einu húsi og var hinn ánægðasti því þá gæti hann þvegið sér um hendurnar eftir allt átið;-)
Húsmóðirn fer í skoðun á eftir, það eru komnar 30 vikur og allt gengur vel. Saknaðar kveðjur til íslands...

1 comment:

Anonymous said...

Hæhæ.

VIð söknum ykkar allra mikið! Gott að heyra að allir hafi það gott.
Verðum að fara að spjalla á skype-inu bráðlega :)

kveðja

Móa