Við fengum góða gesti til okkar á föstudaginn, Phil og Christine komu ásamt Jackie. Við áttum notalega kvöldstund saman. Í gær fór svo öll hersingin í mat til Önnu Margrétar og Geirs, það var einnig mjög skemmtilegt, Hjalti og Kata voru líka og það má lengi skrafa um Ísland og það sem betur eða verr mætti fara þar.
Annars er kuldaboli mættur til Iowa, vetrarflíkur komnar úr dvala og gaman, gaman.
Bestu kveðjur
1 comment:
Sæl Anna mín, við mamma þín ásamt Möggu minni vorum að kíkja á myndirnar þínar áðan. Dáðumst að drengjunum þínum og því hvað þú bakaðir flottar afmæliskökur. Söknuðum þess hins vegar að sjá nær engar myndir af þér, vorum sem sagt að vonast til að sjá e-ar flottar bumbumyndir! Þú bætir vonandi úr því...
kær kveðja, Stefanía
Post a Comment