Þá er Hallgrímur orðin fimm ára, kominn með skegg svakalega flottur. Hann hélt veislu í gær, byrjaði þó daginn á að fara með Kára, Ingu Bryndísi, Kolbrúnu og Birtu á Disney on Ice. Voðalega skemmtileg sýning með persónum úr Disney heiminum, svo hélt hann veislu seinna um daginn sem tókst prýðilega og var ansi gaman hjá okkur. Hann fékk fullt af fínum gjöfum og er svo lukkulegur. Nú er tími hrekkjavökunar að byrja, það þarf að finna sér búninga og kannski kíkja á einhvern graskersbæinn til að leika sér. Þetta er skemmtilegur tími hérna og sérstaklega þegar haustveðrið er svona yndislegt.
Ég set inn nýjar myndir og takk kærlega fyrir kveðjurnar, við biðjum öll að heilsa héðan:-)
2 comments:
Til hamingju með afmælið stóri frændi.
Þinn litli frændi,
Alexander Örn a.k.a. Kengúran
Flottar myndir!
Vildi að ég hefði verið hjá ykkur á afmælisdaginn (dagana) og smakkað þessa Hulk köku! ;)
Hún var rosalega flott! Gaman að heyra og sjá að þið hafið það gott!
kossar og knús
kveðja
Móa frænka
Post a Comment