Saturday, September 20, 2008

Afmæli

Bóndinn á afmæli á morgun.  Hér er hann með drengjunum í dýragarðinum.  það var ansi heitt þann daginn!  

Annars gengur skólagangan vel, nóg að gera hjá öllum.  Bensi og Halldór eru búnir að keppa þrisvar sinnum í Cross Country.  Kári og Hallgrímur syngja Buenos dias, Buenos dias, como estas, como estas........... ansi skondið.  

Það eru þrír og hálfur mánuður í nýjasta fjölskyldumeðliminn, gangan gengur vel:-)   Allar dúkkur heimilisins eru nú í fullri notkun, kári er mikið að æfa sig.  Hann er nefnilega líka ófrískur, mun eignast barn sem kemur út um stóru tá og á að heita Narruto.  Hmmm.   Bestu kveðjur héðan úr yndislega haustinu í Iowa.

1 comment:

Unknown said...

Alltaf jafn gaman að fylgjast með ykkur í USA. Vonandi náum við að koma í heimsókn fljótlega.
Afmæliskveðjur,
Bárður, Agnes, Alexander og auðvitað Mozart!