
þá eru þeir bræður búnir með fyrstu vikuna sína. H og B voru mjög ánægðir, það er þó ansi mikið að gera, heimalærdómur og æfingar í Cross Country eða víðavangshlaupi. Fjórar æfingar í viku í einn og hálfan tíma í senn, langir dagar framundan! Stubbarnir mínir eru líka byrjaðir á fullu, eru í tónlist og spænsku á fimmtudögum og í myndlist á þriðjudögum, fyrir utan annað hefbundið Montessori starf. Móðirin þarf nú að fara að finna sér einhver morgunverkefni, jóga og sjálfboðavinna eru svona efst á listanum. Allavega eitthvað annað en hin hefðbundnu heimilisstörf !
Halldór og Benedikt eru með næturgesti, það er búið að panta pizzur og ætla þeir að hreiðra um sig í kjallaranum með snakk og hryllingsmynd:-) Við Hari ætlum að skemmta yngra settinu. Biðjum kærlega að heilsa heim í handboltastemmninguna
Ps myndin er af Freight Train sem er stærsta svín Iowa aðeins,1265 pund eða 573,79 kg.......
1 comment:
Gaman að fylgjast með ykkur kæra fjölskylda :) Væri æðislegt að heimsækja ykkur einhverntímann í náinni framtíð :)
Góð kveðja úr haustkuldanum á Íslandi, ykkar frændi, Alexander Örn mom, dad og Mósi
Post a Comment