Þá erum við orðin sex að nýju. H og B komnir heim, brúnir og sællegir eftir dvöl á Íslandi! Það var gott að fá þá aftur heim.
Hér er allt ósköp rólegt, Hari klárar skólann á fimmtudag, yngra settið er komið í frí frá sínum skóla og þeir eldri eru bara að njóta dagsins.
Það fer að líða að gestakomu. Hallgrímur afi mætir hér á föstudaginn og svo förum við Hari á móts við Baggalúts menn og konur á laugardeginum. Þetta verður spennandi frí, keyrum til Canada og tökum rúnt um nokkur fylki í USA, endum svo í sveitasælunni hér á Bambagötu.
Bestu kveðjur og ég vona að andleysi frúarinnar fari nú að batna.
1 comment:
Hæhæ Iowa fjölskylda!
Gott að heyra að þið hafið það gott. Vildi að ég væri að fara með pabba í heimsókn að sjá ykkur öll!
bestu kveðjur
Móa
Post a Comment