Monday, June 23, 2008

Júní

Við erum fjögur í kotinu, eldra settið er á Íslandi að hitta pabba sinn, ættingja og vini. Kári og Hallgrímur voru að byrja á leikskóla og finnst voða gaman að vera saman. Þeir eru búnir að vera rúma viku og gengur mjög vel. Afi Hallgrímur kom að heimsækja okkur í maí, það var mjög góð heimsókn. Hann kemur svo aftur í ágúst.

það er sérstök stemmning í bænum núna þegar flóðin eru, árnar eru þó í rénun, en enn þá eru götur sem ekki er hægt að keyra og það er alveg ótrúleg hreinsun sem á eftir að fara fram. Það má þó ekki fjarlægja sandpokana strax þar sem ekki þykir ólíklegt að það flæði aftur. Við vorum þó heppnari en nágrannabær okkar, Cedar Rapids, þar sem yfir hundrað húsaraðir fóru í kaf.

Núna erum við að njóta sumarsins, veðrið er yndislegt, búin að setja niður grænmeti og krydd. Vínberjatréin hafa tekið ótrúlega vel við sér og ætli ég nái ekki að klára að verja pallinn áður en næsta heimsókn verður. Kalli og Stefanía eru að koma til okkar með krakkana núna á föstudaginn og ætlum við að hafa það notalegt hér í veðurblíðunni.
Vona að ekki verði langt í næstu skrif og set inn nokkrar myndir frá maí og júní.

2 comments:

Anonymous said...

Sæl Anna mín!

Ég kíki öðru hverju á síðuna þína og þykir gaman að fylgjast með. Gott að lesa að allt er í lagi hjá ykkur en það hefur greinilega gengið mikið á og flætt um allt. Er á leið til Spánar í fyrramálið, seinasti fundurinn í Comeniusi, - hringi í þig í sumarfríinu sem tekur svo við eftir ferðina.

Bestu kveðjur til allra,
Kristín

Anonymous said...

Sælar
Gott að heyra að veðrið sé að batna. Verð að fara að heyra í þér allt of langt síðan. Bestu kveðjur til ykkar allra.
Ingibjörg Anna