Wednesday, April 02, 2008

miðvikudagur

Þegar við vöknuðum í morgun var frost í jörðu, allt hvítt, heiðskírt og ótrúleg stilla. Yndislegt veður. Við Kári erum búin að skila af okkur skólafólkinu og erum á leið til Önnu Margrétar í göngu. Það verður hressandi.
Hari er í prófum þessa vikuna, Bensi og Halldór eru nýbúnir með útilífsskólann, sem stóð yfir alla síðustu viku og var rosalega skemmtilegur. Núna er útiboltinn að byrja hjá þeim, loksins, það hefur ekki verið hægt að spila vegna bleytu.
Við erum bara ósköp róleg þessa dagana, kannski pínulítið spennt þar sem amma Gunna er að koma til okkar á föstudaginn. Það verður nú ansi skemmtilegt. Meira seinna.....

1 comment:

Anonymous said...

Hæ hæ frændfólk
Alltaf jafngaman að fylgjast með ykkur. Mér þykir Hallgrímur líkjast frænda sínum Grími Nóa á nokkrum myndunum.
Allt gott að frétta héðan frá Hollandi!
Edda&Valtýr og krakkarnir