Drengirnir eru búnir að fá heimsókn, Hekla og Fannar eru komin og það er nú ekki leiðinlegt á bænum þá. Annars erum við búin að vera í frí saman ég og drengirnir mínir. Fjagra daga helgi, svaka stuð. Benedikt og Halldór skelltu sér á skauta í gær, það var ansi skrautlegt og mæli ég með fleiri ferðum svona til að ná betra jafnvægi. Móðirinn ákvað að prófa ekki, kannski seinna.
Við Hari fórum á þorrablót um helgina. Það var haldið hjá Kötu og Hjalta og var alveg einstaklega vel heppnað blót. Það var vel mætt, við fengum gesti frá nærliggjandi sveitum og fylkjum. Maturinn, sem var fluttur inn frá Íslandi, var bara ansi góður og ekki má gleyma ísköldu Brennivíninu sem rann ljúft niður.....
Bestu kveðjur
No comments:
Post a Comment