Tuesday, February 05, 2008

Bolludagur

Hér erum við strákarnir að byggja snjóhús. Það hefur snjóað ansi mikið undanfarið og það heldur áfram að snjóa. Í gær var enginn skóli (vegna veðurs!) hjá H, B og H þannig að slegið var í bolluveislu. Við bökuðum 60 bollur og fengum góða íslendinga í heimsókn.
Í kvöld verður svo kosningavaka á heimilinu. Við ætlum að gera baunasúpu að hætti Iowabúans, því miður ekkert saltkjöt:-(
Annars höfum við það alveg ágætt, smá kef að hrella suma heimilismenn en ekkert alvarlegt. Benedikt og Halldór fóru á mini-Dance-Marathon um daginn í skólanum sínum. Hallgrímur og Kári fóru líka, það var dansað í tvo tíma, þetta fannst þeim bræðrum mjög skemmtilegt. Nú fer Valentínusardagurinn að nálgast og er Hallgrímur búinn að bjóða foreldrum sínum í teboð á leikskólann í tilefni þess. Það er gaman að því hvað Kaninn er alltaf duglegur að stytta sér stundir með allskyns "hátíðum".
Ég set inn nokkrar myndir og við biðjum að heilsa.

2 comments:

Anonymous said...

Sæl Anna mín, við Magga og mamma þín skemmtum okkur við það að skoða myndir á síðunni þinni í kvöld, alveg aftur til dvalar mömmu þinnar úti!
Það er líka vetur hjá okkur en við virðumst fá mislyndari veður en þið, alltaf að breytast.
kærar kveðjur til ykkar allra, Stefanía

Anonymous said...

Hæ! Rosalega ertu myndarleg Anna mín!Frábærar myndir og gott að heyra að þið hafið það gott! Bið að heilsa öllum.
kveðja

Móa