Sunday, January 20, 2008

Gleðilegt ár

Gleðilegt ár kæru vinir og vandamenn.
Takk fyrir okkur á Íslandi, það var mjög gaman að koma í heimsókn og hitta ykkur öll. Ég átti þó aldrei von á því að það yrði svona erfitt að snúa sólarhringnum við. Það bara hreinlega gekk ekki, þannig að þegar við vorum komin aftur heim til Iowa voru fjölskyldumeðlimir ansi fljótir að jafna sig á tímamismun, svona næstum eins og við hefðum aldrei farið!
En nóg um það, nú eru drengirnir búnir að vera í skólanum og allt gott að frétta þaðan, Hari byrjar á þriðjudaginn, þar sem á morgun er Martin Luther King dagur og því enginn skóli hér í USA. Hér er ansi kalt þessa dagana fór í -25 gráður í gær. Bensi og Halldór voru að leika sér á sleða með vini sínum á föstudaginn, það var svo kalt að varirnar á Bensa festust við rennilásinn á úlpunni hans, þeir voru gjörsamlega frosnir. En við njótum fallega veðursins og dáumst að dýralífinu hér, dádýr í garðinum og skallaernir í trjánum.
Bestu kveðjur og ég set inn myndir hið snarasta

No comments: