Friday, November 30, 2007

Skólinn byrjar aftur

Þá erum við búin að vera í fríi öll saman. Þakkargjörðarboðið tókst afskaplega vel og voru kalkúnarnir mjög góðir ásamt öllu meðlætinu.
Hér eru ansir margir búnir að skreyta hjá sér og það er ekki laust við það að fjölskyldan á Bambagötu sé komin í jólaskap. Við ætlum þó ekki að skreyta hjá okkur fyrr en um helgina, það er setja upp jólaljós á húsið og kannski einn uppblásinn bangsa í beðið! Kári er alveg að tryllast í jólaljósadýrðinni, honum finnst þetta svo gaman og vill helst að við kaupum allt alveg eins og allir hinir.
það er farið að kólna hjá okkur og eigum við von á snjó um helgina. Strákarnir náðu að fara aðeins á þotu í frívikunni en snjórinn var ekki mikill svo hann er allur farinn núna.
Þá er komið að því að fara að sækja Hallgrím á leikskólann, við Kári erum búin að eiga rólegan og góðan morgun. Fórum í morgunkaffi hjá Björk og Þorra vinum okkar og svo aðeins að versla. Ég set inn myndir á eftir, bestu kveðjur.

3 comments:

Anonymous said...

Hæ kæra frændfólk, við bíðum spennt eftir nóvember-myndum, það er svo gaman að sjá hvernig þið hafið það í mið-vestrinu. Við erum að gera svo svipaða hluti. Hugsum oft til ykkar og eigum nú vonandi eftir að hittast þegar við flytjum nær ykkur. Við erum líka að komast í jólaskap og ætlum einmitt að skreyta um helgina;-)
Knús á liðið
Thorsson fjölskyldan í West Hartford

Anonymous said...

Enginn snjór hjá okkur hér í Hollandi og lítið um jólaljós.
Hér snýst allt um svartapétur og santaklaas sem lítur út eins og páfi í rauðum fötum! En við erum að sjálfsögðu búin að skreyta hjá okkur þó að við flytjum í nýtt hús eftir fimm daga, hlustum á íslensku jólalögin og syngjum á meðan við pökkum...
Kveðja, Edda, Valtýr, Guðjón Gunnar, Helga, Guðmundur Valur, Adda, Vala og Símon

Anonymous said...
This comment has been removed by a blog administrator.