Garðar kom til okkar um helgina. Hann er staddur í Chicago vegna vinnunnar og ákvað að eyða fríhelginni sinni með okkur. það var mjög gaman að fá hann, við Hari notuðum tækifærið fengum okkur barnapíu og fórum út að borða.
Annars er allt fínt héðan, fórum í góðan göngutúr í morgun, ég og Kári ásamt kraftgöngukvennsunum. Við gengum um hverfið mitt og fengum okkur svo hádegismat allar saman. Núna er Hari í prófum næstu tvær vikur síðan er Þakkargjörð hér í USA. Þá er frí hjá skóladrengjunum og fjölskyldan voða spennt fyrir því.
En núna eru drengirnir orðnir gagaga af afskiptaleysi móður sinnar þannig að ætli ég segi ekki bara hafi þið það sem allra best og setti inn nýjar myndir.
Kalli bró átti afmæli í gær, til hamingju
No comments:
Post a Comment