Við áttum góða helgi fjölskyldan. Fórum til Madison, Wisconsin.
Erindi ferðarinnar var að sjálfsögðu fótbolti, en í leiðinni kíktum við á gamlar heimaslóðir húsbóndans, sem var ekki leiðinlegt. Þetta er falleg borg og það var gaman fyrir strákana að sjá hvar pabbi þeirra hafði farið í skóla, leikið sér og átt heima þegar hann var lítill.
Benedikt og Halldór komu ekki tómhentir heim frá þessu móti. Liðið þeirra lenti í öðru sæti og fengu þeir glæsilegan verðlaunagrip að launum.
Núna eru helstu verk hér að raka saman lauf úr garðinum og skreyta fyrir Hrekkjavöku, sem er á miðvikudaginn kemur. Drengirnir eru búnir að finna sér búninga, það eru bara við Hari sem eigum eitthvað erfiðara með það.
Allir biðja að heilsa héðan og nýjar myndir eru á leiðinni..............
2 comments:
Hæ hó. Kærar þakkir fyrir sendinguna og góðar kveðjur. Hlökkum mikið til að ykkur í góðu stuði í desember.
Gummi, Margrét, Diljá, Máni og María.
Hæ. Gaman að sjá nýjar myndir! Hlakka mikið til að fá ykkur heim í desember. Hafið það gott þangað til!
Post a Comment