Wednesday, October 03, 2007

Langafi kemur í heimsókn

Ég fór og hitti kraftgöngukonurnar í morgun, við fórum rúnt í miðbæ Iowa City, gengum meðfram ánni og enduðum síðan á léttum hádegisverði. Við mættum sprengjuleitarbíl og nokkrum jakkafata, sólgleraugnatöffurum á svörtum jeppum. Það hefur nefnilega verið svolítið um sprengjuhótanir í Háskólanum og þeir höfðu greinilega fengið eina slíka í morgun.
Við erum núna að njóta góða veðursins og taka pínulítið til áður en næstu gestir koma. Það eru góðir dagar framundan hjá okkur, með langafa og börnunum hans, Elsu og Ásgeiri. Við Hari og strákarnir höfum verið afskaplega heppin hvað margir hafa lagt leið sína til okkar, því við erum nú ekki alveg í alfaraleið.

1 comment:

Móa said...

Hæhæ. Gaman að heyra að þið hafið það gott. eru allar íslensku konurnar í þessum gönguhópi? Við erum búin að heyra að afi hafi haft það yndislegt hjá ykkur.
heyrumst vonandi fljótlega

kveðja

Móa