Við mamma ákváðum að taka því rólega í dag. Hún er í sólbaði og ég lét verða af því að setja inn nokkrar myndir af fjölskyldunni. B og H voru að koma heim úr skólanum og vilja endilega fara á bókasafnið, svo þangað er ferðinni heitið núna. Þeir slá ekki slöku við í lestri, þó nóg sé að gera í skólanum. Þeir eru svo gjörsamlega heillaðir af manga..... Eitthvað sem mamman átti ekki von á.
Takk fyrir kveðjurnar og bestu kveðjur til baka.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
sæl öll sömul og sérstaklega nýja afmælisbarnið hann Hallgrímur, sem fær koss og knús frá Möggu. Við erum búnar að skoða fullt af myndum af ykkur og sjáum að þið hafið það alveg rosalega gott þarna úti. Við erum farnar að skilja af hverju þið hafið ekkert komið heim! Svo sáum við líka að það er full ástæða fyrir okkur að koma og kíkja á ykkur, kannski á næsta ári??
kær kveðja, Stefanía og Magga
Post a Comment