Monday, September 24, 2007

Hallgrímur 4 ára



Þá er komið að þriðja og síðasta afmælinu í þessum mánuði. Á morgun, 25 sept, verður Hallgrímur 4 ára. Hann ætlar að hafa veislu og er búinn að bjóða íslensku vinunum sínum og Hyrum leikskóla vini sínum. Hallgrímur er einn af þeim sem veit alltaf hvað hann vill og er því búinn að skipuleggja heljarinnar veislu með leikjum, þrautum og tilheyrandi. Nú reynir bara á mömmuna og pabbann að koma þessu öllu til skila á sem bestan máta :-)

Annars er bara allt gott að frétta, veðrið gæti ekki verið betra, það er aðeins byrjað að hausta og einstaka nágranni er farinn að setja út Halloween skraut...........

3 comments:

Anonymous said...

Vá - Hallgrímur orðinn 4 ára - Til hamingju með afmælið Hallgrímur. Húsbóndinn fær líka síðbúna kveðju frá okkur.

Bestur kveðjur, Ingibjörg og Úlfur

Móa said...

Hæ allir saman! innilega til hamingju með afmælið elsku Hallgrímur okkar. ég vona að þú hafir haft það gott á afmælisdaginn.

sakna ykkar allra

kveðja

Móa frænka

Anonymous said...

Til hamingju með afmælin strákar mínir, bestu kveðjur til allra
Bebba og co.