þá er loksins komið að því. Nú er ég búin að vera hér í eitt ár og átta daga. Tíminn líður ansi hratt verð ég að segja. Nú hefst rútína númer tvö, skólarnir að byrja, þrír elstu drengirnir eru byrjaðir, sá allra elsti byrjar ekki fyrr en í næstu viku og sá yngsti spyr: "hvar er minn skóli?" En H,B og H eru að standa sig ansi vel. Nýji skólinn hjá H og B er svolítið erfiður og heilmikil heimavinna þó aðeins þrír dagar séu búnir og Hallgrímur fer í spænsku og tónlist á morgun, sem er voðalega spennandi. Svo það er óhætt að segja að það er nóg að gera hjá þeim. Svo er fótboltinn byrjaður og um helgina er fyrsta mótið hjá þeim bræðrum, sem verður örugglega voðalega skemmtilegt, ég tala ekki um þar sem ég fæ að standa í sjoppunni í tvo tíma og selja walking tacos, eða eitthvað álíka skemmtilegt.
Segjum þetta gott í bili, læt heyra mjög fljótlega í mér aftur og set inn myndir úr ferðalaginu fyrr en seinna.
Í dag á Þorgeir Kristinn Karlsson Blöndal afmæli og við óskum honum innilega til hamingju, pilturinn er 12 ára.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hæ hæ , alltaf gaman að lesa pistlana ykkar og skoða skemmtilegu myndirnar.
Hjá okkur fer líka allt að komast í rútínu. Já tíminn flýgur sko hér í Ameríku, mér finnst eins og við séum nýkomin ;-)
Hringi fljótlega;-)
Álfhildur og famílía í West Hartford
Alvöru soccer mom hér á ferð. Hvernig eru annars walking tacos ?
Rigning í Vatnsmýrinni í dag. Hafið það sem best!
Hæ Anna og fjölskylda!
Mamma sagði mér slóðina hingað, gaman að kíkja aðeins á myndir af ykkur stórfjölskyldunni. Takk fyrir kveðjuna á myndasíðuna okkar, hafið það sem allra best:)
Kv, Brynja og Þórhildur Arna KristínarMar ömmustelpa
Hæ Anna og fjölskylda!
Mamma sagði mér slóðina hingað, gaman að kíkja aðeins á myndir af ykkur stórfjölskyldunni. Takk fyrir kveðjuna á myndasíðuna okkar, hafið það sem allra best:)
Kv, Brynja og Þórhildur Arna KristínarMar ömmustelpa
Post a Comment