Tuesday, July 10, 2007



Jæja nú er orðið ansi langt síðan síðast. Enda fjölskyldan búin að vera upptekin síðastliðnar þrjár vikur. Við fengum nefnilega svo skemmtilega heimsókn, hann Úlfur kom með mömmu sinni henni Ingibjörgu. Við vorum ansi dugleg við að finna okkur eitthvað að gera og var þetta hinn skemmtilegasti tími. Drengirnir þrír náðu voðalega vel saman og fannst ekkert skemmtilegra en að sulla í garðinum, fara í bíltúr í dýragarðinn, fara á ströndina eða bara í göngutúr í hverfinu. Við Ingibjörg stungum líka af til Chicago eina nótt sem var ekki leiðinlegt. Hari stóð sig einstaklega vel með drengina þrjá, sem breyttust í litlar ofurhetjur á meðan;)
Við gerðum okkur líka glaðan dag á 4 júlí. Fylgdumst með skrúðgöngunni, fengum svo Íslendingana í garðinn og grilluðum, um kvöldið var svo flugeldasýning, sem var mjög gaman þar sem ekki má skjóta flugeldum á öðrum dögum en þessum!

Núna er allt við það sama, Hallgrímur er ánægður á leikskólanum sínum, Kári er með mömmu sinni og Hari er á fullu í sínu námi. Eftir viku koma svo Halldór og Benedikt aftur heim, með þeim í för verður amma Gunna. Hún ætlar að koma og vera hjá okkur fram í október. Það verður nú ekki leiðinlegt.
Við biðjum að heilsa og vonum að allir séu að njóta góða veðursins.
Komnar nýjar myndir

No comments: