Við vorum að koma inn á hótel eftir alveg frábæran dag. Sáum vísunda, fjallageitur, sléttuhunda og dádýr, keyrðum í gegnum Custer state park, kíktum á Crazy Horse og að sjálfsögðu á forsetana fjóra sem eru alveg ótrúlega flottir. Flestir voru þó orðnir ansi þreyttir eftir daginn og Kári sofnaði á leiðinni heim. Annars er alveg ótrúlegt hvað þeir bræður eru góðir í ferðinni, því börnum finnst nú ekki alltaf gaman að sitja lengi í bíl:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment