Tuesday, June 12, 2007


Hér er allt við það sama ósköp notalegt og fínt. Hari er í skólanum á morgnana svona til að byrja með og á morgun byrjar Hallgrímur í leikskólanum. Við ætlum að fara á eftir og kaupa skólatösku, til að setja bækur og aukaföt í. Hann er orðin ansi spenntur að byrja.

Bensi og Halldór eru að hafa það ansi gott á Íslandi, þeir hringdu áðan, voru voða spenntir þar sem þeir höfðu farið á sjó með pabba sínum og afa og veitt myndarlegan þorsk!

Í síðustu viku lentum við í ansi óvanalegri aðstöðu þegar viðvörunar bjöllurnar glumdu hér í bæ og allir þurftu að fara niður í gluggalausu geymsluna sína á meðan hvirfilbylurinn fór framhjá. Það urðu engin slys í þetta skiptið, allavega ekki hér í Iowa. Þetta var frekar óvenjulegt og svolítið skrítið. Ég, Hallgrímur og Kári vorum í hádegismat hjá Önnu Margréti Jóns ásamt Björk og hennar þremur börnum þegar þetta gerðist þannig að niður í geymslu fórum við þrjár ásamt sjö börnum og þurftum að sitja þar í næstum klukkutíma:) Það gekk ótrúlega vel...

Núna er allt rólegt, 34 stiga hiti og allir inni í augnabikinu að hvíla sig. Ég fer að setja inn nýjar myndir bráðlega en þangað til hafi þið það sem allra best og til hamingju með daginn Brynja mín

No comments: