Thursday, May 03, 2007


Æji hvað það er gaman að fá kveðju frá ykkur, takk takk fyrir það.

Ég var að setja inn nokkrar myndir. Við Anna Margrét Svavars. skelltum okkur yfir eina nótt til Chicago um daginn. Það var mjög skemmtilegt og endurnærandi.
Svo erum við strákarnir alltaf í boltanum þessa dagana eins og áður sagði og um daginn kepptu B og H við Arsenal, (en þeir halda með Arsenal í enska boltanum) og að sjálfsögðu unnu þeir, það er B og H, en þeirra lið heitir Matrix.
Hér eru allir orðnir spenntir að fá fjölskylduna frá Látraströndinni í heimsókn. Þau ætla að koma 21 maí til okkar og vera í nokkra daga.
Finnst ykkur ekki málverkið flott, það er eftir bandarísku myndlistarkonuna Georgia O'Keeffe.
Sá þetta í Chicago og heillaðist svona líka. Heyrumst..

2 comments:

Anonymous said...

áfram matrix ! go halldór, go benedikt!
flottar myndir Anna, sjáumst fljótlega
Ragnheiður

Anonymous said...

Hæhæ! Ég hlakka mikið til að koma til ykkar í heimsókn.Það verður alveg æðislegt að sjá ykkur..ég er ekki búin að sjá ykkur í næstum því ár!:S Áfram B og H! Flottar myndir af öllum....sakna ykkar mjög mikið og hlakka til að sjá ykkur og húsið og skólann og alles...kveðja....móa systir/mágkona og frænka.