Tuesday, May 22, 2007

Gestir í Bambagötu og afreksmaður á forsíðu

Kirkwood Elementary students Chan Hee, 11, left, and Benedikt Karlsson, 10, celebrate after taking first place in the fifth-grade boys' three-legged race during the Iowa City Elementary Track and Field Days at West High School on Monday, May 21, 2007. Press-Citizen / Dan Williamson

Þessi mynd og texti voru á forsíðu íþróttablaðs dagblaðsins hér í Iowa City í dag. Allir fimmtu og sjöttu bekkingar voru að keppa í ýmsum þrautum og stóðu bræðurnir sig einstaklega vel í öllum greinum sem þeir kepptu í og komu svo ánægðir heim.

Margrét Halldóra, Ásgeir, Hallgrímur og Ragnheiður eru komin til okkar. Þau verða í viku og ætlum við að vera dugleg að skoða hér í kring, versla svolítið og svo bara hafa það gott saman.
og svo smá meiri gleðifréttir því Kári og Eyrún eignuðust son 16 maí, hann fékk nafnið Þór og er svo flottur. Við erum í sambandi við þau á hverjum degi og kíkjum á herrann á skæpinu. Það er gaman að hafa þennan möguleika að geta séð og fylgst með nýfæddum frænda svona í gegnum tölvun
Tómatatréin eru komin niður, það er rammgirt í kringum þau svo kanínurnar borði þau ekki. Þær eru víst vitlausar í tómatatré!
Hér eru allir svo ánægðir með heimsókn og nýjan frænda, gott veður og blóm í haga.
Biðjum að heilsa.

1 comment:

Anonymous said...

Elsku Anna mín og þið öll!

Auðvitað standa strákarnir sig vel, þeir eiga svo góða að sem hvetja þá til dáða á hverjum degi! Takk fyrir allar myndirnar, ég kíki öðru hverju mér til mikillar gleði og fréttaskeytin þín eru til fyrirmyndar.

Kær kveðja, Kristín