Það er ekki svefnsamt um nætur núna vegna ótrúlegra þruma og eldinga, hagls og rigningar.
Nú er að hefjast tímabil hvirfilbylja og þrumustorma (thunder storms). Í apríl í fyrra fór hvirfilbilur um Iowa City og tók með sér nokkur hús, bíla og annað lauslegt. Það má lesa um það hér: http://www.icpl.org/tornado/ Við erum að sjálfsögðu búin að skipuleggja hvað gera skal ef bjallan glimur;). Þetta er pínulítið spennandi og framandi, ég vakna hér á morgnana ósofin og spyr drengina hvort þeir hafi ekki heyrt í þrumunum, rigningunni eða kannski haglinu og þeir horfa á mig með skrítnum svip og segja nei.... Ég skil ekki hvernig hægt er að sofa í þessum hávaða.
En nóg um það vona að allir hafi það gott í hitabylgjunni á Íslandi, og gleðilega páska allir saman.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ!
Það er lánt síðan síðast. Magga á afmæli á morgun og er að verða sjö ára. Henni tókst að hjóla í dag rétt áður en hún varð sjö. Ykkur er boðið í afmælið hennar á morgun klukkan tvö en við reikknum ekki með að þið komið en reinum samt að hafa smá auka skamt af mat handa ykkur.
Við sjáumst seinna.
kv. Þorgeir
Við vorum að kíkja á myndirnar hjá ykkur með Gunnu áðan og höfðum öll gaman af. Þið virðist una hag ykkar svo vel þarna úti og virðist ekki hafa mikið hingað að sækja lengur!
Við erum núna mitt í fermingarvertíðinni, tveir frændur búnir að fermast og einn um næstu helgi. Einn í viðbót síðan um hvítasunnuna. Svo verður haldin veisla hér fyrir Möggu (7) á morgun en síðan verður brunað í sveitina og leitað að páskaeggjunum þar.
Gleðilega páska, Stefanía
Post a Comment