Þá eru Páskarnir búnir, ef kalla skyldi páska. Hér var allt eins og vanalega, skóli, vinna o.s.frv. En við hér á Brúnu Bambagötu fengum öll páskaegg og þökkum við ömmu Ragnheiði sérstaklega fyrir það. Kári fékk líka síðbúna afmælisgjöf og var hann agalega glaður. Það var lítill bróðir:)
Það er óhætt að segja að hér séu veðursviptingar, ég er ekki fyrr búin að tala um hækkandi hitastig þegar allt fellur og við erum aftur komin í húfur og vettlinga. Ég held að þessu veðurblaðri mínu sé endanlega lokið, það er ekkert að marka þetta.......
Annars er hann frændi minn, Benedikt Blöndal, að fara að fermast núna á laugardaginn, æji ég væri nú alveg til í að mæta þar og hitta aðeins fjölskylduna. En það verður að bíða betri tíma.
Bensi og Halldór eru að fara að keppa um næstu helgi, vona að það verði orðið hlýrra! Við þurfum að mæta ansi snemma á sunnudeginum eða um kl 6:30. Þeir eiga að keppa kl 7:00.
það er svo gaman að fylgjast með þeim, þeir eru alltaf að verða betri og betri.
þá kalla Kári og Hallgrímur, þeir eru svangir, best að fara og sinna þeim. Ég set inn myndir á eftir.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment