Hæ hér er Kári með litla bróður eða litla baby eins og hann kallar dúkkuna. Hann var að fá hana í afmælisgjöf, voðalega ánægður eins og ég áður sagði. Þeir bræður fóru á bókasafnið í gær og komu heim með fangið fullt. Bensi og Halldór lesa bara manga bækur núna, finnst ekkert skemmtilegra og Hallgrímur og Kári fundu sér tölvuleik og dvd mynd, Hallgrímur er að verða svo flinkur með músina og Kára finnst ekkert leiðinlegt að horfa á, ennþá!
Annars er allt í snjó núna:) veit ekki alveg hvað er að gerast en það er bara ósköp fallegt veður úti. Vona að allir hafi það gott, heyrumst.
2 comments:
sæl öll, stóra fjölskyldan á kornakrinum. það er alltaf svo gaman að fá nýjar myndir, þær eru ekki skoðaðar á næstu vikum sjaldnar en 50 sinnum. þetta sýnast mér vera alveg óvenjulega glæsileg ungmenni allt saman (og þið eruð líka myndarleg, fullorðna fólkið!)við hlökkum mikið til að koma í maí,tljum dagana:)
ra-amma
Hae hae, gaman ad skoda siduna ykkar, sjaumst i afmaelinu minu a morgun.
Knus Inga Bryndis
Post a Comment