Friday, April 20, 2007

Föstudagskvöld í Coralville

Betra er seint en aldrei. Þessi færsla átti að fara inn um daginn en það misfórst eitthvað.

Klukkan er að verða hálf sjö og ég sit hér úti í garði og nýt góða veðursins. Hari ætlar að grilla handa okkur, Bensi og Halldór eru að æfa sig í hafnarbolta og Hallgrímur og Kári eru að sulla í eldhúsinu sínu. Allir að hafa það bara nokkuð gott eftir erilsama viku.
Aldrei þessu vant hefur verið heilmikil dagskrá hjá okkur svona fyrir utan venjulegan vinnutíma.
Ég og hinar íslensku kvennsurnar ásamt þremur mæðrum og einni ömmu skelltum okkur í leikhúsið á þriðjudaginn. Það var verið að sýna Hársprey, (Hairspray) sýning sem er búin að vera lengi á Broadway við góðar undirtektir. Það var mjög skemmtilegt.
Hari og Örvar skelltu sér aftur á móti á fyrirlestur hjá forsetanum fyrrverandi Jimmy Carter á miðvikudaginn. Sem ég efast ekki um að hafi verið ágætis skemmtun líka.
Í gær stormaði svo fjölskyldan til Bjarkar og Óttars, en heimili þeirra varð kjörstaður og mætti konsúlinn frá Minneapolis til að stýra þessu og sjá til þess að allt færi fram samkvæmt lögum. Við stóðum okkur bara nokkuð vel og náðum inn 17 atkvæðum, sem verða sett í póst á næstu dögum. Það er greinilega nóg af íslendingunum hér og auðvitað kusu allir rétt.

No comments: