Monday, April 30, 2007

Það er orðið langt síðan síðast........


En við höfum það alveg ágætt, horfðum á B og H keppa í fótbolta á laugardaginn, þeir unnu 3 - 1. Svo var komið heim og aðeins slappað af áður en farið var í afmæli til hennar Ingu Bryndísar, hún var að halda upp á IV ára afmælið sitt. Það var mjög gaman, vel mætt af Íslendingum, eins og alltaf. Síðan komum við heim og litlu herrarnir fóru í bað með nýju vatnsbyssurnar sínar, sem var ekki leiðinlegt:)
Það er skemmtilegt frá því að segja að á sunnudeginum gerðum við nákvæmlega það sama, eða byrjuðum daginn á fótbolta, fórum svo í afmæli til Elísubetar í sveitina, sem var mjög skemmtilegt.

Það er komið ansi gott veður, tréin eru í blóma, meira að segja nokkur tré í garðinum okkar sem er algjör draumur. Þetta er mynd af perutréinu okkar ég rétt náði að taka mynd af síðasta blóminu.
Bið að heilsa öllum

3 comments:

Anonymous said...

Hæ Anna mín og fjölskylda, ég var bara rétt í þessu að fá senda slóðina á síðuna ykkar. Gaman að sjá hvernig þið hafið það þarna í Iowa. Nú förum við að fylgjast reglulega með;-) Takk fyrir kveðjuna á okkar síðu um daginn:)
Viltu senda mér netfangið ykkar á alfhildur@gmail.com

Bestu kveðjur frá okkur í West Hartford

Anonymous said...

Hæ Anna mín
Alltof langt síðan að ég hef "kíkt" á ykkur. Alltaf gaman að fylgjast með og gott að heyra að fleiri spá í veðrið en við hér á klakanum. Annars búið að vera gasalega gott veður undanfarið á skerinu okkar.
Reyni oft að ná þér á msn-inu en það gengur bara alls ekki. Gefst samt ekki upp.
Bestu kveðjur til allra.
Ingibjörg Anna

Anonymous said...

Sæl stóra fjölskylda, ég veit ekki hvort þið eruð með teljara á síðunni, en það skal viðurkennt að það er ég sem lít hér við mjög, mjög oft !
takk Anna mín, sjáumst eftir tvær vikur
Ragnheiður