Saturday, March 31, 2007


Hér eru bræðurnir að gæða sér á ís í göngu- hjólatúrnum okkar. Núna eftir að það fór að hlýna reynum við að fara svolítið út að viðra okkur. Það er ansi stutt síðan ekki var hægt að opna glugga fyrir kulda en svona er þetta. Hér er allt að verða ansi fallega grænt, tréin aðeins að byrja að blómstra og H og B byrjaðir að æfa fótbolta úti! Mikill munur. Hari er í ritgerða og próf syrpu núna, það gengur bara vel hjá honum.
Íslendingahópurinn er enn að stækka og fæddist lítil dama hér fyrir viku síðan, hún fékk nafnið Ása Dagrún og er dóttir Önnu Margrétar og Geirs, læknahjóna.
já og það var ekki leiðinleg símhringing sem ég fékk á föstudagskvöldið úr Þjórsárdalnum. Ég þakka vinkonum mínum fyrir það, alltaf gaman að heyra í ykkur elskurnar.

2 comments:

Anonymous said...

sæl Anna mín, gaman að fylgjast með ykkur á heimasíðunni, bestu þakkir fyrir það!
Ragnheiður

Anonymous said...



ég man eftir þessum ís stað og man eftir bragðinu.


kv. þorgeir