Hér er Hallgrímur að hjálpa til við snjómoksturinn. Við erum að gera okkur vonir um að snjórinn verði farinn í næstu viku og vorið sé á næsta leiti. Allavega er hitastigið að fara hækkandi.......
Í næstu viku er svokallað vorfrí hjá skóladrengjunum þremur. Við erum að hugsa um að kíkja á einhverja af stórborgunum hér í kringum okkur og skoða sveitina svolítið. Það er allavega alveg tilvalið að fara eitthvert.
Foreldraviðtölin gengu mjög vel, B og H eru að standa sig alveg rosalega vel. Ég er alveg ótrúlega stolt af þeim. Þeir eru líka búnir að vera að keppa í fótbolta síðastliðnar tvær helgar og gekk bara mjög vel, fyrri helgina lenti liðið þeirra í öðru sæti og þá seinni í fyrsta. Voðalega gaman hjá þeim, að sjálfsögðu.
2 comments:
gengur þetta?
Hæ hæ Anna og co.
Frábært framtak að setja upp þessa síðu ég kíkji daglega til þess að athuga hvort að eitthvað nýtt er komið inn á hana. Þið hafið það greinilega fínt í USA.
Bestu kveðjur
Bentína og co.
Post a Comment