Ég fór með strákana á Childrens Museum um daginn, það var mjög gaman. Þar er ýmislegt við að vera og fundu þeir sér allir eitthvað að gera. Ég setti inn myndir frá því, ásamt öðrum eins og frá afmælinu hans Kára.
Hér er annars allt í fínu standi. Ég fór og hitti Iowa kvennsur í gær, nú er sú fjórða búin að bætast í óléttu hópinn. Það eiga tvær að eiga núna í mars og tvær í ágúst. Svo það verður gaman hjá mér næsta vetur í mömmuklúbbnum..........
B og H eru í fríi í dag, það eru foreldraviðtöl. Ég fer kl 3, það verður forvitnilegt að heyra í kennaranum þeirra hvernig þeim gengur í skólanum.
það rættist aðeins úr veðrinu, kom allavega ekki frostregn en það er svolítið íslenskt veður núna rigning og rok, nema það eru líka þrumur og eldingar. Strákarnir vilja fara í mollið og ætli ég láti það ekki bara eftir þeim. Heyrumst seinna
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Til hamingju með tveggja ára snáðann. Við reyndum að hringja nokkrar vinkonurnar á afmælisdaginn en náðum aldrei í gegn. Bestu kveðjur af klakanum. IAA
Post a Comment