Saturday, March 17, 2007

Fjölskyldan í fríi

Það er laugardagskvöld og yngstu meðlimirnir eru sofnaðir. Það er verið að sækja hina tvo þeir fengu að fara í pizzu og video til hans Fannars vinar síns. Fannar var að eignast lítinn bróður fyrir viku síðan, sem fékk nafnið Þorri Heiðar.
Annars er búið að vera voðalega gaman hjá okkur í vikunni, snjórinn horfinn, hitinn fór í 25 gráður, jólaserían tekin niður, farið í bíltúr í höfuðborgina, Des Moins, og kíkt í dýragarðinn, farið út að hjóla og grillað með vinum.
Ég held að vorið sé eiginlega bara alveg að koma. Það er ekki leiðinlegt, svona sérstakleg af því að það er ennþá Mars. Í mínum huga er þetta alveg yndislegt og einn af kostunum við að búa erlendis.
Annar kostur er allt þetta dásamlega dýralíf. Hér sér maður villta kalkúna í vegakantinum, hinn glæsilegi ameríski Skallaörn svífur um, Bambi kemur alltaf í garðinn á nóttunni og íkornar og kanínur á daginn.
En ég er búin að setja inn nýjar myndir og vona að allir hafi það gott á Íslandi!

2 comments:

Anonymous said...

Ekki það að maður öfundi ykkur en hér er frost og eina dýralífið eru gráðugir mávar og krummar. En þetta er voða kósý og maður sér fram á a.m.k. tvo svona mánuði í viðbót. Svo njótið góða veðursins!!
Frostkveðjur, Helga.

Anonymous said...

Var að skoða myndir af fjölskyldunni í einu brekkunnií Coralville hehe, rosa fínar myndir af ykkur. Hlökkum til að sjá ykkur,
Kveðja úr 12. stræti